BG Teppahreinsun sérhæfir sig í faglegri teppahreinsun stigaganga og sameigna í fjölbýlishúsum. Mikil umferð og daglegt álag valda því að ryk, blettir og önnur óhreinindi safnast smám saman í teppin. Regluleg djúphreinsun hjálpar til við að viðhalda snyrtilegu yfirbragði og lengja endingartíma teppanna.
Áður en vinna hefst metum við gerð teppis, ástand, umfang óhreininda og aðstæður í sameigninni. Oftast er notuð öflug blauthreinsun, en þurrhreinsun getur hentað betur þegar mikilvægt er að stytta þurrktíma eða lágmarka rask.
Á hverju ári hreinsum við teppi í hundruðum sameigna. Við skipuleggjum vinnuna í samráði við húsfélagið og leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og eins lítið rask fyrir íbúa og kostur er. Þjónustan er í boði á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Akranesi og Selfossi.
Þjónustan fyrir húsfélög getur meðal annars falist í:
