BG Teppahreinsun býður faglega djúphreinsun á gólfum fyrir fyrirtæki, stofnanir, húsfélög og heimili. Með tímanum safnast óhreinindi og ummerki um notkun á yfirborðið, sérstaklega þar sem umferð og álag er mikið. Vönduð hreinsun getur bætt útlit gólfsins verulega og hjálpað til við að lengja endingartíma þess.
Áður en vinna hefst metum við gólfefni, ástand og tegund óhreininda. Hreinsiaðferð og tækjabúnaður eru síðan valin með hliðsjón af verkefninu, hvort sem um er að ræða flísar, dúk, álagsgólf, öryggisgólf eða önnur hörð gólfefni.
Við tökum að okkur bæði stök hreinsiverkefni og reglulegt viðhald. Markmiðið er að ná jöfnum og vönduðum árangri með eins litlu raski á starfsemi og kostur er.
Þjónustan nær meðal annars til eftirfarandi gólfefna og verkefna
