Óhreinindavarnir fyrir teppi

Fyrirbyggjandi vörn gegn óhreinindum

Viðhaldsþjónusta fyrir teppi í fyrirtækjum og sameignum hjálpar til við að halda teppum hreinum og lengja endingartíma þeirra.  Óhreinindavörn fyrir teppi og bólstruð húsgögn hjálpar til við að verja yfirborðið og auðvelda regluleg þrif.  Óhreinindavarnir eru stundum settar á teppi eftir hreinsun. Þegar teppi eru ný er oftast vörn frá framleiðanda á teppinu.  Með umgangi og hreinsunum fer þessi vörn af með tímanum.  Þess vegna er mikilvægt að endurnýja þessa vörn þar sem álag er mikið á teppunum.  Algengt er að óhreinindavörn sé notuð í veislusölum, teppalögðum veitingastöðum, skrifstofum, skipum ofl.

Við bjóðum einnig óhreinindavörn fyrir bólstruð húsgögn og mottur. Vörnin hentar sérstaklega vel á fleti sem eru mikið notaðir og getur auðveldað regluleg þrif og dregið úr líkum á að blettir festist í efninu.

Best er að bera óhreinindavörn á hreint og þurrt yfirborð. Þjónustan er því oft framkvæmd samhliða djúphreinsun eða strax að henni lokinni, eftir mati á efni, ástandi og notkun.

Panta þjónustu

Hafðu samband