Djúphreinsun á teppum í sameignum með öflugasta tækjabúnaði sem völ er á

BG Teppahreinsun sérhæfir sig í faglegri teppahreinsun stigaganga og sameigna í fjölbýlishúsum. Mikil umferð og daglegt álag valda því að ryk, blettir og önnur óhreinindi safnast smám saman í teppin. Regluleg djúphreinsun hjálpar til við að viðhalda snyrtilegu yfirbragði og lengja endingartíma teppanna.

Áður en vinna hefst metum við gerð teppis, ástand, umfang óhreininda og aðstæður í sameigninni. Oftast er notuð öflug blauthreinsun, en þurrhreinsun getur hentað betur þegar mikilvægt er að stytta þurrktíma eða lágmarka rask.

Á hverju ári hreinsum við teppi í hundruðum sameigna. Við skipuleggjum vinnuna í samráði við húsfélagið og leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og eins lítið rask fyrir íbúa og kostur er. Þjónustan er í boði á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Akranesi og Selfossi.

Þjónustan fyrir húsfélög getur meðal annars falist í:

  • Alhreingerningar í sameignum, meðal annars á veggjum, loftum og gluggum
  • Neyðarhreinsun eftir óhöpp og slys
  • Blettahreinsun á teppum í sameignum
  • Hreinsun á mottum í sameignum
  • Óhreinindavörn fyrir teppi og mottur

Við getum sinnt stakri djúphreinsun eða reglulegu viðhaldi eftir stærð sameignar, umferð og þörfum húsfélagsins. Hafðu samband við BG Teppahreinsun og fáðu ráðgjöf og verðtilboð í teppahreinsun fyrir þína sameign.

Panta þjónustu

Hafðu samband